Kynningarfundur í Garðabæ

Kynningarfundur þriðjudaginn 3. september kl. 16:00 í Jónshúsi í Garðabæ

Í september verður tekinn inn nýr hópur þátttakenda í verkefnið Fjölþætt heilsuefling í Garðabæ. Af því tilefni verður kynningarfundur þriðjudaginn 3. september kl. 16:00 í Jónshúsi, Strikinu 6 í Garðabæ.

Auk þjálfunar fara allir þátttakendur í ítarlega heilsufarsmælingu á 6 mánaða fresti og fá boð á regluleg fræðsluerindi.

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á skraning@janusheilsuefling.is eða í gegnum www.janusheilsuefling.is

Hópurinn æfir í Gym heilsu á Álftanesi undir handleiðslu Sævars Þórs Gylfasonar, verkefnastjóra og þjálfara.

Heilsupistill.pdf

Hlaða niður

Fleiri fréttir