Fara í efni
Um Janus heilsueflingu

Um Janus heilsueflingu

Janus heilsuefling hefur sérhæft sig í heilsueflingu 60 ára og eldri. Að baki heilsueflingunni liggja niðurstöður doktorsrannsóknar Janusar Guðlaugssonar. Markmið verkefnisins er að koma til móts við einstaklinga sem vilja efla heilsu sína og lífsgæði þrátt fyrir hækkandi aldur.

Þróun Janusar heilsueflingar í gegnum tíðina

Janus heilsuefling byrjaði með sýn um að bæta velferð og heilsu eldri borgara á einfaldan en markvissan hátt, drifið áfram af gagnreyndum aðferðum.

Fjölþætt heilsuefling - Leið að farsælum efri árum

2014

Fjölþætt heilsuefling - Leið að farsælum efri árum

Með birtingu á doktorsverkefni Janusar Guðlaugssonar árið 2014 kemur fram sú sýn að hægt sé að stórefla heilsu eldri borgara með réttum þjálfunaraðferðum.

Fyrsta sveitarfélagið

2017

Fyrsta sveitarfélagið

Reykjanesbær gengur til samninga við Janus heilsueflingu árið 2017 og niðurgreiðir úrræðið fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu.

Evrópa tekur eftir

2018

Evrópa tekur eftir

Embætti Landlæknis hefur samband og sendir frumkvöðla Janusar heilsueflingar á ráðstefnu Evrópuráðsins sem nefnist CHRODIS+. Verkefnið var valið besta verkefni sinnar tegundar á ráðstefnunni. Janus heilsuefling hlýtur einnig sprotastyrk frá Rannís til þess að halda áfram þróun heilsugagnagreinis fyrir eldri borgara.

Útgáfa heilsugagnagreinis

2021

Útgáfa heilsugagnagreinis

Fyrsta útgáfa heilsugagnagreinisins lítur dagsins ljós í formi rafræns gagnagrunns og applausnar þar sem hægt er að fylgjast með árangri af æfingum og mælingum til lengri tíma.

Janus heilsuefling í OECD

2022

Janus heilsuefling í OECD

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) fær fregnir af árangri verkefnisins og óskar eftir því að fá gögn afhent til að meta niðurstöðurnar fyrir sín samstarfslönd. Árangurinn af starfi Janusar heilsueflingar verður að sérstökum kafla í skýrslu OECD frá 2022. Þar segir m.a. að sé verkefnið innleitt á Íslandi megi áætla að það komi í veg fyrir 464 tilfelli langvinnra sjúkdóma árið 2050 og að þátttakendur eigi kost á að lengja líf sitt um allt að 7 ár.

Aukin þátttaka sveitarfélaga

2023-2025

Aukin þátttaka sveitarfélaga

Fleiri og fleiri sveitarfélög sjá hag sinn í því að bæta við úrræðum Janusar heilsueflingar til þess að bæta lífsgæði eldri borgara í sveitarfélaginu og draga úr heildarkostnaði fyrir sveitarfélagið.

Teymið

Janus Guðlaugsson

Janus Guðlaugsson

Stofnandi og gæðastjóri

Íþrótta- og heilsufræði Phd

janus@janusheilsuefling.is
Ragnar Kormáksson

Ragnar Kormáksson

Framkvæmdastjóri

M.Sc. Fjármál fyrirtækja

ragnar@janusheilsuefling.is
Sævar Þór Gylfason

Sævar Þór Gylfason

Verkefnastjóri, Garðabær

Íþrótta- og heilsufræði M.ed

saevar@janusheilsuefling.is
Bergþór Stefánsson

Bergþór Stefánsson

Verkefnastjóri, Hafnarfjörður

BSc íþrótta- og heilsufræði

beggi@janusheilsuefling.is
Hanna Bedbur

Hanna Bedbur

Heilsuþjálfari

Íþrótta- og heilsufræði MSc

hanna@janusheilsuefling.is
Tómas Guðmundsson

Tómas Guðmundsson

Heilsuþjálfari, Kópavogi

 

tomas@janusheilsuefling.is
María Eir Magnúsdóttir

María Eir Magnúsdóttir

Heilsuþjálfari, Grafarvogi

BSc í Kinesiology – Exercise Physiology

maria@janusheilsuefling.is
Bryndís Birgisdóttir

Bryndís Birgisdóttir

Verkefnastjóri & heilsuþjálfari, Borgarbyggð

 

bryndis@janusheilsuefling.is
Ragna Baldvinsdóttir

Ragna Baldvinsdóttir

Heilsuþjálfari, Akureyri

Íþrótta- og heilsufræði M.ed

ragnabaldvins@janusheilsuefling.is
Ásta Heiðrún Jónsdóttir

Ásta Heiðrún Jónsdóttir

Heilsuþjálfari, Akureyri

Íþrótta- og heilsufræði M.Sc.

astaheidrun@janusheilsuefling.is
Gunnhildur Hinriksdóttir

Gunnhildur Hinriksdóttir

Verkefnastjóri Þingeyjarsveitar

M.Sc. í íþróttafræðum

gunnhildur@janusheilsuefling.is
Laufey Frímannsdóttir

Laufey Frímannsdóttir

Heilsuþjálfari

ÍAK einkaþjálfari

laufey@janusheilsuefling.is
Erla Rós Sigmarsdóttir

Erla Rós Sigmarsdóttir

Verkefnastjóri, Vestmannaeyjar

ÍAK einkaþjálfari og ÍAK styrktarþjálfari

erla@janusheilsuefling.is
Jóhannes Kári Yngvason

Jóhannes Kári Yngvason

Heilsuþjálfari

ÍAK einkaþjálfari

johannes@janusheilsuefling.is

Langar þig að starfa með okkur?

Við leitum alltaf að góðu fólki sem vill leggja sitt af mörkum til betri heilsu í samfélaginu. Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur.

Hafa samband

Hvað segja þátttakendur okkar

Upplifun þátttakenda af því hvernig Janus heilsuefling hefur hjálpað þeim og bætt lífsgæði

  • “Það er svo gaman að mæta á æfingu. Mér finnst frábært að það er alltaf þjálfari á staðnum, sem er duglegur að leiðbeina og benda á æfingar sem gætu hentað betur fyrir hvern og einn. Æfingarnar eru í aðgengilegu appi og miða að því að styrkja allan líkamann, auka liðleika og jafnvægi. Einnig er þetta frábær félagsskapur.”

    EB
    Elín Borg Melsted
  • “Janus heilsuefling er einstakur vettvangur fyrir einstaklinga sem vilja styrkja heilsu sína á heildrænan hátt. Þar mætast fagmennska, hlýja og einstaklingsmiðuð nálgun sem gerir það að verkum að maður finnur sig öruggan og hvattan til að ná markmiðum sínum. Starfsfólkið er bæði frótt og innilegt og leggur metnað í að finna lausnir sem henta hverjum og einum. Ég mæli eindregið með Janusi heilsueflingu fyrir þá sem vilja bæta líðan sína, orku og lífsgæði.”

    Einar Magnússon
    Einar Magnússon
  • “Þátttaka mín í verkefninu hefur aukið lífsgæði mín. Mér líður betur andlega og líkamlega. Mér finnst leiðsögnin og stuðningurinn frá þjálfurum góður.”

    Bryndís Guðmundsdóttir
    Bryndís Guðmundsdóttir
  • “Eftir að ég byrjaði hjá Janusi heilsueflingu hef ég fundið fyrir auknu úthaldi og betri svefni. Ég hef bætt við mig vöðvamassa og mittismálið minnkað. Einnig er félagsskapurinn frábær.”

    Skúli Gunnar Böðvarsson
    Skúli Gunnar Böðvarsson
  • Byrjaðu strax.

    “Byrjaði fyrir u.þ.b. þremur árum og veit ekki hvar ég væri staddur ef ég hefði ekki haft þetta prógram. Á þessum tíma er ég búinn að ganga í gegnum mjaðmaskipti, lærbrot og endurtekna viðgerð á lærbroti en hef náð ótrúlegum styrk í gegnum þetta kerfi. Flottir þjálfarar, góður félagsskapur og eftirfylgni góð.”

    ÞJ
    Þorvaldur JónssonBorgarbyggð
  • Með hækkandi aldri verður góð heilsa ekki metin til fjár.

    “Miklu betri líðan. Bæði líkamlega og ekki síður andlega. Aukinn styrkur, aukið þol og vöðvabólgan á bak og burt. Svo er það ekki síður mikils um vert að eiga gott samfélag með þjálfunarfélögum sínum.”

    LJ
    Laufey JóhannsdóttirGarðabær/Álftanes
  • Láttu vaða, þú sérð ekki eftir því.

    “Orkan er að koma, jafnvægið er smátt og smátt að aukast, úthaldið er farið að verða betra, félagsskapurinn er frábær. Þjálfarinn er meiriháttar.”

    Ingibjörg Fríða Ragnarsdóttir
    Ingibjörg Fríða RagnarsdóttirFjarðabyggð
  • Byrjaðu strax í gær.

    “Betri svefn, meiri orka. Ég er búin að léttast og fá pínu meira sjálfstraust. Mér finnst appið og þjálfarinn 100%.”

    Elizabeth Goodall Alexandersdóttir
    Elizabeth Goodall AlexandersdóttirBorgarbyggð
  • Mæli 100% með þessu.

    “Aukinn styrkur, fækkun kílóa og betri líðan. Appið er algjör snilld, maður ræður betur hraðanum sem maður fer í gegnum æfingarnar. Eins er hægt að fara á öðrum tíma ef eitthvað kemur upp á á hefðbundnum æfingartíma. Þjálfararnir eru ótrúlega jákvæðir og hvetjandi.”

    TJ
    Tryggvi JónssonReykjavík
  • Ef þú vilt efla þol og styrk þá skaltu skrá þig sem fyrst.

    “Miklu sterkari og meira þol, fer létt með að ganga á Helgafell og Búrfell.”

    RB
    Rúnar BjörnssonGarðabær/Álftanes
  • “Meiri orka og líður betur í skrokknum og frábær félagsskapur. Frábær þjálfari og skemmtilegur hópur.”

    GK
    Guðbjörg KarlsdóttirVestmannaeyjar
  • “Meiri orka, sjálfstraust og góðir félagar. Þetta er að verða ávanabindandi.”

    SG
    Steinunn GarðarsdóttirBorgarbyggð
  • “Ómissandi. Gefur okkur betri lífsgæði að öllu leyti, líkamlega sem andlega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Þessar æfingar hafa breytt allri líðan minni til hins betra.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Styrkur minn hefur aukist, ég er ánægðari með minn líkama og vona að þessi þjónusta verði um alla framtíð.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Ég hvet allt eldra fólk að nýta sér þessa frábæru þjónustu sem sannarlega hefur virkað vel fyrir mig.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mjög ánægð bæði hvað varðar aukinn styrk og úthald og ekki síður félagslega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Allt gott við þetta, ekki síst andlega hliðin!”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mæli eindregið með þessari þjálfun fyrir aldraða.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025

Árangursríkt samstarf við innlend og alþjóðleg samtök

Landlæknir Íslands
OECD
CHRODIS+