Kynningarfundur í Garðabæ

verður þriðjudaginn 20. febrúar kl. 16.00 í Jónshúsi Strikinu 6

Í febrúar verður tekinn inn nýr hópur þátttakenda í Garðabæ. Af því tilefni verðum við með kynningarfund þriðjudaginn 20. febrúar kl. 16.00 í Jónshúsi Strikinu 6.

Til þess að skrá sig á kynningarfundinn má senda tölvupóst á netfangið skraning@janusheilsuefling.is.

Vinsamlegast takið fram að þið séuð að skrá ykkur á kynningarfundinn í Garðabæ.

Þau sem eru ákveðin að taka þátt og vilja sleppa kynningarfundi mega senda nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer á netfangið skraning@janusheilsuefling.is

Við hvetjum alla áhugasama til þess að mæta.

Innifalið fyrir þátttakendur:

  • líkamsræktarkort í Gym heilsu
  • styrktarþjálfun undir handleiðslu þjálfara 2x í viku
  • þolþjálfun undir handleiðslu þjálfara 1x í viku
  • ítarlegar heilsufarsmælingar á 6 mánaða fresti
  • regluleg fræðsluerindi og heilsupistlar
  • aðgangur að heilsuappi Janusar heilsueflingar
  • aðgangur að lokuðum Facebook hópi

Heilsupistill.pdf

Hlaða niður

Fleiri fréttir