Fara í efni
Til baka
Frétt27. nóvember 2024

Hágæða heilsuefling Akureyri

Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 21. janúar kl. 17:00 í Háskólanum á Akureyri.

Janus heilsuefling
Hágæða heilsuefling Akureyri

Hágæða heilsuefling hefur verið í boði á Akureyri síðan haustið 2023. Hópurinn æfir í World Class Skólastíg á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og eru tímar í boði kl. 07:00, 08:00, 09:00 og 10:00. Iðkendur æfa undir handleiðslu þjálfaranna Ástu Heiðrúnar Jónsdóttur og Rögnu Baldvinsdóttur.

Hágæða heilsuefling Akureyri

Ragna Baldvinsdóttir er fædd á Akureyri en fluttist 3 ára á Laugar í Reykjadal. Ragna er gift og á þrjár stelpur.

Hún er menntaður íþrótta- og heilsufræðingur og heilsunuddari og hefur þjálfað hinar ýmsu íþróttir eins og til dæmis blak, fótbolta og frjálsar íþróttir.

Hún er starfandi íþróttakennari í Þelamörk og tók þátt í að innleiða þjálfun Janusar heilsueflingar á Akureyri.

Netfang: ragnabaldvins@janusheilsuefling.is

Ásta Heiðrún Jónsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri. Hún er gift og á 2 stelpur.

Ásta er menntaður íþrótta- og heilsufræðingur og hefur starfað við margskonar þjálfun í 15 ár.

Hún stundar sjálf hlaup, blak og lyftingar af kappi en finnst annars öll útivist skemmtileg eins og fjallgöngur, skíði og klifur.

Netfang: astaheidrun@janusheilsuefling.is

Hægt er að skrá sig til þátttöku með því að senda póst á info@janusheilsuefling.is eða í gegnum heimasíðuna okkar www.janusheilsuefling.is